|
1. gr. Nafn og heimili 1. Nafn sambandsins er Landssamband stangaveiðifélaga, skammstafað L.S. 2. Heimilisfang þess er í Reykjavík. 2. gr. Tilgangur Tilgangur sambandsins er að koma á víðtækum og öflugum samtökum íslenskra stangaveiðifélaga og gæta hagsmuna þeirra, m.a. með því að: 1. Vera málsvari stangaveiðiféalga í landinu. 2. Jafna ágreining sem upp kann að koma milli sambandsfélaga. L.S. hefur ekki úrskurðarvald í ágreiningsmálum nema aðilar óski þess. 3. Stuðla að útgáfu fræðsluefnis um stangaveiði. 4. Efla samstarf stangaveiðifélaga, veiðiréttareigenda og annarra veiðiréttarhafa. 5. Stuðla að góðri samvinnu við Veiðimálastofnun og önnur yfirvöld veiðimála og auka skilning stjórnvalda og almennings á málefnum stangaveiðimanna. 6. Vinna að endurbótum á löggjöf um lax- og silungsveiði. 7. Koma í veg fyrir rányrkju á göngu- og vatnafiski. 8. Stuðla að eflingu fiskistofna í ám og vötnum. 9. Vinna að umhverfisvernd og auknum vörnum gegn hvers konar mengun. 3. gr. Aðildarfélög 1. Öll stangaveiðifélög geta sótt um aðild að L.S. 2. Stjórn L.S. tekur ákvarðanir um inntöku félaga. Sé stjórnin ekki sammála, skal ágreiningi skotið til næsta aðalfundar. 4. gr. Árgjöld 1. Ákveða skal árgjald á aðalfundi. Gjalddagi þess er 1. júní. 2. Árgjald hvers félags skal miða við tölu þeirra félagsmanna sem greitt hafa árgjald síðastliðið ár. 3. Hafi félag ekki greitt árgjald í tvö ár getur stjórnin, eftir eðlilegar innheimtuaðgerðir, máð nafn þess af félagaskrá. 5. gr. Fjármál 1. Ekkert félag á tilkall til hluta af eignum L.S. þó að það hverfi þaðan eða félaginu verði slitið. 2. Aðildarfélög bera enga ábyrgð á skuldbindingum L.S. með öðru en árgjöldum sínum. 6. gr. Boðun aðalfundar 1. Aðalfundur skal haldinn í októbermánuði ár hvert. 2. Til fundarins skal boðað með bréfi til stjórnar aðildarfélaga með minnst mánaðarfyrirvara. Einnig skal fundurinn auglýstur í dagblöðum með vikufyrirvara. 3. Aðalfundur er lögmætur ef hann er löglega boðaður. 7. gr. Fulltrúar á aðalfund 1. Fulltrúavali á aðalfund skal haga þannig: Félag með 19 félaga eða færri hefur rétt til að senda einn fulltrúa á aðalfund, félag með 20 félaga tvo fulltrúa og síðan einn fulltrúa fyrir hverja 20 félagsmenn upp í 199, þá einn fyrir hverja 50 félagsmenn. 2. Félög skulu tilkynna stjórn L.S. um fulltrúatölu sína a.m.k. 15 dögum fyrir aðalfund. 3. Fulltrúar hafa því aðeins atkvæðisrétt að félög þeirra hafi greitt árgjöld sín. 4. Aðildarfélög geta falið einum eða fleiri félagsmönnum sínum að fara með atkvæði félagsins á aðalfundi, þó ekki fleiri en 5 atkvæði hverjum, enda sé aðsetur félagsins í meira en 100 km fjarlægð frá fundarstað miðað við loftlínu. 8. gr. Verkefni aðalfundar Á aðalfundi skulu þessi mál tekin fyrir eftir því sem við á: 1. Skýrsla formanns. 2. Endurskoðaðir reikningar. 3. Lagabreytingar. 4. Kosning stjórnar og endurskoðenda samkvæmt 10. gr. 5. Kosning tveggja fulltrúa og eins til vara til tveggja ára í Landvernd. 6. Kosning tveggja fulltrúa og eins til vara í framkvæmdanefnd Sambands stangaveiðifélaga á Norðurlöndum , Nordisk Sportfiskerunion (N.S.U.), til þriggja ára samkvæmt lögum N.S.U. 7. Kosning eins fulltrúa og eins til vara á Náttúruverndarþing þriðja hvert ár. 8. Tilnefning aðalmanns og varamanns í Veiðimálanefnd til fjögurra ára samkvæmt lögum þar um. 9. Ákvörðun árgjalds. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á aðalfundi, annarra en lagabreytinga. 9. gr. Kosning stjórnar 1. Í stjórn skulu kosnir fimm menn, formaður og fjórir meðstjórnendur. Auk þess þrír varamenn og skal haga stjórnarkjöri þannig: 2. Formann skal kjósa til eins árs. Ef tilnefndir eru fleiri en einn skal kjósa skriflega. Sá hlýtur kosningu sem fær flest atkvæði. Falli atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða. 3. Hina fjóra stjórnarmenn skal kjósa til tveggja ára, tvo sitt hvort árið, annan úr félagi utan Reykjavíkur, hinn úr félagi í Reykjavík. Kosning skal vera skrifleg ef stungið er upp á fleiri en einum frá hvorum aðila. Falli atkvæði jöfn innbyrðis ræður hlutkesti. 4. Kjósa skal þrjá varamenn í stjórnina til eins árs, skriflega ef stungið er upp á fleiri en þremur. Falli atkvæði jöfn ræður hlutkesti. 5. Tveir endurskoðendur skulu kosnir til eins árs ásamt einum til vara á sama hátt og varamenn í stjórn. 10. gr. Stjórnarfundir 1. Formaður kveður stjórn saman til fundar. 2. Stjórnin skiptir með sér verkum. 3. Skylt er að halda stjórnarfund ef 2 eða fleiri stjórnarmenn óska þess, enda geri þeir grein fyrir fundarefni. 4. Stjórnarmaður, sem ekki getur sótt fund, boðar varamann til að sitja fundinn í sinn stað. Verði þessu ekki viðkomið kveður formaður til varamanninn. 5. Ályktun stjórnar er lögmæt ef þrír stjórnarmenn hið fæsta samþykkja hana. 11. gr. Verkefni stjórnar 1. Stjórnin fer með mál L.S. milli aðalfunda og kemur fram fyrir hönd þess. 2. Stjórn L.S. er heimilt að kveðja sér til aðstoðar einstaka félaga til afmarkaðra verkefna, nefndarstarfa og þess háttar. 3. Stjórnin skal senda eintak af endurskoðuðum ársreikningi og afrit af fundargerð aðalfundar til aðildarfélaga að loknum aðalfundi. 12. gr. Aukafundir 1. Stjórnin kveður til aukafunda þegar henni þykir þörf, eða minnst einn þriðju hluti skuldlausra aðildarfélaga óskar þess, enda geri þau grein fyrir fundarefni. 2. Aukafundi skal boða með minnst 10 daga fyrirvara. 3. Um atkvæðagreiðslu á aukafundum fer skv. 7. gr. 4. Stjórnin getur boðað til formannafunda þegar henni þykir ástæða til. Skal þá boða formenn aðildarfélaga, eða þann fulltrúa er þau velja, til fundar með stjórn L.S. 13. gr. Lagabreytingar 1. Lagabreytingar verða aðeins gerðar á aðalfundi, enda séu tillögur þar um sendar með fundarboði. 2. Tillögur til lagabreytinga, sem aðildarfélög vilja koma á framfæri, skulu sendar stjórn L.S. fyrir 1. september. 3. Aðeins verða greidd atkvæði um breytingartillögur sem fylgdu fundarboði og breytingartillögur við þær. 4. Lagabreyting nær því aðeins fram að ganga að hún hljóti 2/3 hluta greiddra atkvæða. 14. gr. Endadægur 1. Komi fram vilji meirihluta aðildarfélaga eða stjórnar um að L.S. verði lagt niður skal málið tekið fyrir á 2 næstu aðalfundum til endanlegrar afgreiðslu. 2. Tillaga um slit sambandsins skal send með fundarboði. 3. Slitin ná fram að ganga verði þau samþykkt með minnst 2/3 greiddra atkvæða. 4. Síðasti aðalfundur ráðstafar eignum sambandsins. Samþykkt á aðalfundi Landssambands stangaveiðifélaga þann 26. október 1996. Landssamband stangaveiðifélaga ver hagsmuni íslenskra stangaveiðimanna og hyggst ná fram markmiðum sínum með því að: - Berjast fyrir rétti innlendra veiðimanna til að stunda veiði í ám og vötnum landsins.
- Beita sér gegn óhóflegri verðlagningu veiðileyfa.
- Stuðla að náttúruvernd og berjast gegn hvers konar rányrkju á vatnasvæðum landsins.
- Hvetja til hófsemi í veiði og stuðla að háttsemi í meðferð fengs.
- Efla samkennd meðal stangaveiðimanna og stuðla að vexti og viðgangi stangaveiðiíþróttarinnar á Íslandi.
Stjórn LS telur að stefni í óefni hvað varðar óhóflega verðlagningu á veiðileyfum hérlendis. Markaðssetning erlendis og aukin sókn útlendinga í vatnasvæði okkar kann að skapa gjaldeyristekjur en verður til þess að Íslendingar sitja á hakanum. Til lengri tíma litið gæti þetta einnig reynst veiðiréttarhöfum hættulegt því útlendingarnir hverfa eins og dögg fyrir sólu ef veiðin bregst. Netaveiði á laxi þar sem koma má stangveiði við er tímaskekkja sem ætti ekki að þekkjast. LS berst gegn rányrkju á fiskitegundum sem eru í útrýmingarhættu en Atlantshafslaxinn er talinn þeirra á meðal. Þétt mannabyggð meðfram árbökkum getur sömuleiðis valdið mengun á búsvæðum laxfiska og ber að taka tillit til náttúrunnar í þessu samhengi. Virkjanir geta haft áhrif á stofna sjóbleikju, laxa eða annarra tegunda vatnafiska og ber að rannsaka slík áhrif gaumgæfilega áður en ráðist er í framkvæmdir og meta fórnarkostnaðinn. LS hvetur íslenska veiðimenn til að sýna hófsemi í veiði og fara vel með feng. Fluguveiði á vaxandi vinsældum að fagna hér á landi sem erlendis og aðferðin “veitt og sleppt” sömuleiðis. Stjórn LS telur þetta jákvæða þróun sem sé til þess fallin að bæta umgengni við náttúru Íslands. Innlendir stangaveiðimenn þurfa að standa saman í baráttunni fyrir hagsmunum sínum. Hér gildir hið fornkveðna: Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér.
|